Verkstaður

Persónuverndarstefna

Síðast uppfærð: 14. ágúst 2026

1. Ábyrgðaraðili

Verkstaður er rekinn af Mynstra (hér eftir „við“). Fyrirspurnir um persónuvernd skal senda á hjortur@mynstra.is.

2. Hvaða gögn við söfnum

  • Aðgangsupplýsingar: nafn, netfang og dulkóðað lykilorð.
  • Verkefnagögn: vinnusvæði, verkefni, hæðarteikningar, pinnar, verkþættir og tengd lýsigögn sem notendur skrá.
  • 360°-myndir: myndir af byggingarsvæðum sem notendur taka og hlaða upp, ásamt tökutíma og staðsetningu innan teikningar. Myndir geta óviljandi sýnt einstaklinga á vettvangi; farsímaforritið býður upp á sjálfvirka andlitsblörrun fyrir upphleðslu.
  • Tæknileg gögn: nauðsynlegar aðgangskökur (e. session cookies) til innskráningar. Við notum hvorki auglýsinga- né greiningarkökur.

3. Tilgangur og lagagrundvöllur

Gögnin eru unnin til að veita þjónustuna: skráningu og skoðun framvindu byggingarverkefna fyrir viðskiptavini okkar (grundvöllur: framkvæmd samnings). AI-greining mynda (t.d. mat á framvindu og greining herbergja á teikningum) fer aðeins fram að frumkvæði notanda.

4. Vinnsluaðilar og hýsing

Við notum eftirfarandi vinnsluaðila til að reka þjónustuna:

  • Railway – hýsing forrits og gagnagrunns (gagnaver í Vestur-Evrópu).
  • Railway Storage Buckets – geymsla mynda.
  • Postmark – sending kerfispósta (boð, lykilorðsendurstilling).
  • Google Gemini – AI-greining mynda þegar notandi óskar greiningar. Myndir sem sendar eru til greiningar eru ekki notaðar af Google til að þjálfa módel samkvæmt skilmálum Gemini API.

5. Varðveisla og eyðing

Verkefnagögn eru varðveitt á meðan samningssamband varir. Við lok þess, eða að beiðni viðskiptavinar, er gögnum eytt eða þau afhent. Notandi getur óskað eyðingar aðgangs síns með því að hafa samband.

6. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á aðgangi að eigin gögnum, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun vinnslu og gagnaflutningi. Þú getur einnig lagt fram kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is). Hafðu samband á netfangið hér að ofan til að nýta réttindi þín.

7. Öryggi

Öll samskipti eru dulkóðuð (HTTPS), lykilorð eru geymd hashuð og aðgangur að gögnum er bundinn við vinnusvæði og hlutverk notanda.